|
flottar bíla/sleða/hjólasíður
|
04.07.2008 01:52:20 / jon_gusti88
Núna fyrir 3 mínútum var ég, Jón Gústi Jónsson, að ná að selja krossarann minn.. ég var að tala við 3 gaura á msn í einu, allir ákveðnir í að kaupa hjólið og ég var víst búinn að lofa einum, svo bauð annar betur svo ég sveik loforð og þá var boðið ennþá betur og ég sveik AFTUR loforð til að fara til baka til gaursins sem ég lofaði fyrst og já.. þetta er merkilegt alveg.. een já, helsta í fréttum utan við sölu á hjólinu Ásta og Silja eru komnar frá Afríku og lentu í þvíílíku veseni á heimfarardeginum... (hægt að lesa allt um það á www.holmavik-afrika.bloggar.is ) Silja búin að vera að vinna á FULLU á meðan ég ligg heima í sumarfríinu mínu og hef það bara gott... (haha Lýýður, jáá líður bara veeel) Hamingjudagar fóru vel fram þrátt fyrir það sem stendur í blöðunum, tók eftir einum slagsmálum, þar voru heimamenn, bræður meira að segja, að kýta eitthvað á ballinu en þeir leystu það alveg sjálfir og sín á milli og þurfti lögregla ekkert að hafa fyrir því.. Nú svo er maður kominn inn í Fjöltækniskólann (Iðnskólann í Reykjavík) á Upplýsinga og margmiðlunarbraut, en Silja mín, hún er alltaf svo heppin að hún komst ekki inná brautina sem hún sótti um.. heldur komst hún inná rafiðnarbraut.. ég held ég sé búinn að finna þá manneskju í heiminum sem er óheppnari en ég..  en já, nú fer þetta að verða komið gott... ég reyndar finn fyrir því að mig vanti eitthvað að tala um. Kannski þeir fáu sem lesa þetta blessaða blogg stingi uppá einhverju sniðugu sem ég gæti bloggað um. veit að ég hef gert þetta áður en það verður bara að hafa það..
»
09.06.2008 10:08:12 / jon_gusti88
hæ hó jibbý jei og það allt saman... jæja, Silja og Ásta fóru til Afríku í síðustu viku, í dag eru 15-16 dagar þangað til þær koma heim aftur. Vona að þær séu að skemmta sér vel, þær blogga þegar þær geta á www.holmavik-afrika.bloggar.is endilega skoðið þetta..! en já, ég seldi sleðann á fimmtudaginn, fékk greitt helling af peningum in cash bara... sáttur með það.. svo er allt að komast á fullt hjá Mótokrossfélagi Geislans, www.123.is/strandir brautin er tilbúin og nú á bara eftir að fá leyfi. Það átti að koma maður frá MSÍ á laugardaginn en strákurinn hans slasaði sig á mótorhjóli þannig að hann komst ekki. Vonandi næstu helgi. en já, veit að þetta er leiðinlegt blogg en.... þangað til næst elska þig kv. Jón Gústi
»
27.05.2008 09:41:53 / jon_gusti88
Ég verð eiginlega að byrja þetta blogg á því að segja ykkur hvað ég er hamingjusamur í dag og síðustu 2 mánuði og 7 daga.. enda hef ég mjög góða ástæðu til þess.. ætla ekkert að vera að gubba því eitthvað á bloggið mitt en þið sem þekkið mig annaðhvort vitið af hverju eða getið einfaldlega spurt mig að því..  annars er voða lítið að frétta.. Sleðinn er ennþá til sölu fyrir þá sem vilja (sleðinn í miðjunni neðst í blogginu) en svo er bara lítið annað að frétta.. stefni á iðnskólann í reykjavík næsta haust að læra upplýsinga og margmiðlunarfræði. Vonandi get ég búið með litlu fjölskyldunni sem við erum að vinna í að stofna.. (Ég, Silja og jakob bróðir) og vil bara koma því á hreint... Ég elska þig hnáta mín, og ég skal fara að dansa við þig elskendadansinn úr Jörundi bráðum..  hugs´n´kisses ; **
»
04.04.2008 11:48:56 / jon_gusti88
Jááhh. þið segið það.. blogg, neeei... mér leiðist... mér leiðist alveg gríííðarlega. Er í vinnunni og það er svooo rólegt núna... venjulega hefði ég ekki einu sinni tíma til að horfa á tölvuna, en þið sjáið það að ég hef tíma til að blogga núna þannig að... Eeeen... fréttir?? held að þið vitið svona helstu fréttirnar... sleði til sölu, krossari til sölu eða bæði tækin saman á móti nýju krosshjóli... sdfækaasdlævhjajdfga.Jon.Gusti.asdflækva.Kominn.asdælkfjvadsja.Með.aækldfjfadkf.Kæró.dafjasdf hihihi   oog já ekki meira um það í bili. þangað til næst... 
»
22.02.2008 19:28:21 / jon_gusti88
heyrðu það er nú bara svoleiðis... maður er farinn að blogga eftir pöntun bara... neei kannski ekki..  en já fréttir dagsins í dag eru... þorrablót á Hvammstanga var haldið þann (man það einhver??) og var með eindæmum skemmtilegt...  uu, djamm á skaganum seinustu helgi (að ég held, man ekki)  og var einnig með eindæmum skemmtilegt (held ég sé farinn að drekka of mikið, eða kominn með alzheimer..  uu skallaði handrið í vinnunni á mánudaginn og lét sauma 2 spor í vinstra augnlokið á mér og er með glóðarauga frá helvíti akkúrat núna  svo er auðvitað aðalfréttin sú að ég fór á snjósleða í dag, Fór uppí Kálfanesfjall, eða ætlaði allavega að fara þangað, en einhversstaðar fór ég í vitlaus för og þurfti að snú við í seinustu brekkunni áður en ég komst uppá fjallið. En það vildi þá ekki betur til að bremsurnar á sleðanum mínum gerðu andskotann ekki neitt, þ.e.a.s. þær virkuðu en ég rann samt bara hraðar og hraðar niður fjallið... ´Svo sé ég hvar ég á eftir að lenda á helling af stórgrýti og STÓÓRUM þúfum og reyni að sveigja á milli. En viti menn...! auðvitað þarf ég að lenda á eina grjótinu sem sást ekki og fljúúúga framfyrir mig af sleðanum, rúllaði nokkra kollhnísa og spratt á fætur og greip sleðann þar sem hann kom í rólegheitunum (LOKSINS) á móti mér... en ekki nóg með það, heldur fer ég strax að skoða hvort eitthvað hafi skemmst á sleðanum og sé eitt plast sem er brotið og stigbrettið beyglað og hugsa ,,hey þetta er ekkert svo slæmt,, svo þegar ferðafélagarnir voru búnir að koma og tjekka á mér og hvort ég væri í lagi þá bentu þeir mér á að ein stífan og festingin fyrir hana væru beyglaðar... DO´HH  Og það versta var að ég hefði átt að vita að ég myndi lenda í einhverju svona áður en ég fór af stað, því sleðinn var með bölvuð leiðindi áður en ég fór að heiman. Ég er ekki geðveikur, og ég er ekki að verða það en ég held að sleðinn minn sé skyggn... hann hefur nebblega gert þetta áður..  og þá fór ég samt ooog beyglaði stífu creepy en satt... P.S. Guðrún ég er ekki gamall....
»
28.01.2008 10:51:09 / jon_gusti88
jahh, nú er gaman maður... það kyngir niður snjó og allt að fara á kaf.. djöfull líst mér vel á þetta, nú er bara að klára sleðakerruna og þá er ég fær í flestann sjó (snjó og það er fjör og það er fjör og það er fjör að fara á vélsleðaásteingrímsfjarðarheiði....!
og það er fjör og það er fjör og það er fjör að fara á vélsleðaásteingrímsfjarðarheiði....! en það er alltaf að bætast einhverjir nýjir við sem eru komnir með sleðabakteríuna, sá nýjasti (kannski ekkert skrýtið er hann Bjarki litli.. en hann er að hugsa um að ganga í Polaris crewið... (ef svo má segja) þrátt fyrir miklar fortölur og samningaviðræður af minni hálfu...
og Guðrún... (þú ert ein af fáum sem lest þetta blogg btw) þú SKALT koma á þorrablót á tanganum.. það þarf ekkert að ræða það frekar...  eeeen já ekki meira í bili. heyrumst 
»
23.01.2008 11:06:56 / jon_gusti88
»
03.01.2008 10:09:32 / jon_gusti88
jæjaa... nú hef ég tekið þá miklu og merku ákvörðun að blogga ekki aftur... fyrr en hún Guðrún Sonja tekur sig til og bloggar næst... svo þannig að allir inná www.gudrunsonja.bloggar.is og hvetja hana til dáða... ég blogga þegar hún bloggar..!  standið ykkur
»
10.12.2007 12:42:27 / jon_gusti88
heyrðu já, nú er mánudagur og ég er í vinnunni...! ég held það svei mér þá að ég hafi aaaldrei verið með jafn miklar harðsperrur og í gær og dag... þetta er alveg roooosalegt.. en aðalástæða þess er að ég fór að prufukeyra sleðann á laugardaginn með jóni þór, golla, sigga þór, edda og þresti, svo kom kitti þarna í smástund og atli reyndar líka, en hann var ekki lengi á sleðanum... en þetta var ooofboðslega gaman frábært veður og allt æðislegt uppá heiði... og jújú, ég náði að velta sleðanum og brjóta svona eins og eina hlíf..! EN ÓTRÚLEGT EN SATT..!!!! ég slasaði mig ekki neitt... eeen hénra já, voðalega lítið annað að frétta.. hrundi í það á laugardagskvöld og svo verður 2-faldur afmælisfagnaður á Hvammstanga næstu helgi.... P.S. ég verð 19 ára á morgun 11.desember.     Polaris- Jón Þór...Ski Doo-Jón Gústi...Yamaha-Siggi Þór
 og aftur..
»
27.11.2007 18:53:30 / jon_gusti88
Bruce Willis er svalur gaur...
en já, það er greinilegt að ég þarf eitthvað að fara að gera í þessari síðu... ég er einhverjum 1500 heimsóknum á aftir áætlun...  en já, nú eru nýjustu fréttir þær að ég er búinn að selja Lúsífer, og kaupa mér Snjósleða. SkiDoo MX-Z 700 sem er mjööög gott... gamall draumur að rætast þar.. svo ætla ég að tala um hvað mér er illa við, eða þoli ekki eða hata... til dæmis:
mér er illa við fólk sem nennir ekki að gera neitt eða hjálpa manni við eitthvað sem maður þarf svo augljóslega hjálp við, en er svo ólmt í að gera allt það auðveldasta...!!!
svo þoli ég ekki þegar einhver er að tala um eitthvað sem sá aðili veit ekkert um, t.d. hluti sem á eftir að kynna sér og engar almennilegar röksemdir eða rannsóknir o.s.frv. til að styðja mál sitt...
svo hata ég, (já.. HATA).....
tjahh, ég veit ekki alveg hvað ég hata...  en það er seinnitíma vandamál.. svo ætla ég að minna alla á nýju skoðanakönnunina... sem snýst um það hvort ég á að halda áfram með þetta... yfir og út...!
»
18.10.2007 13:53:12 / jon_gusti88
ekki meir fyrr en ég er kominn með 10 þús heimsóknir í heildina...
»
14.08.2007 01:31:13 / jon_gusti88
eða ætti ég að segja liðþófinn eða liðbandið eða
bara hnéð yfirhöfuð. Það allavega virðist enginn vita hvað er að
löppinni á mér. Kannski ætti ég bara að taka hana af eins og
einhver sagði...
en jújú, ég er kominnaftur á hækjurnar. þessi
ættarmót eru stórhættuleg, kannski var það bara rétt hjá
Söru að ég hefði átt að koma á Gay Pride, hver veit...
en já ég er að reyna að halda einhverju lífi í þessari síðu, mest
af því verður nú bara sama gamla ruglið, en sjáum til hvort ekki
komi inn hérna einhverjar myndir og eitthvað fyrst ég er LOKSINS
búinn að læra að setja þær inn.. 
1. <!--[endif]-->Ef
þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda
að ég væri á föstu eða lausu?
2. Gætir þú hugsað þér að vera á föstu með mér?
3. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í
hug?
4. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
5. Hvernig strákur er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
6. Hvaða lag minnir þig á mig?
7. Hvaða hljómsveit minnir þig á mig?
8. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
9. Hvað giskarðu á að ég verði gamall þegar ég eignast fyrsta
barnið?
10. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
11. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
12. Hvað er mest einkennandi við mig?
13. Hvaða búðir elska ég að fara í?
14. Lokaorð til mín?
»
07.08.2007 17:24:21 / jon_gusti88
jæja, vegna mikilla áskorana og af von um að allar uppnefningar
hætti, (skoðið komment á síðasta bloggi) hef ég ákveðið að
skella inn einni færslu hérna..
en já, svona standa málin.. bryggjuhátíðin var haldin á
drangsnesi helgina 20-22 júlí. Ég var edrú..
en tussugaman samt..
svo var næsta helgi eftir það skroppið á hvammstanga eftir vinnu
á laugardeginum 28 júlí. En ég, veiga, aðalheiður og auðvitað jón
örn ökumaður gistum þar um nóttina, en pétur, björk, þorbjörg,
elín og hekla fóru aftur um nóttina.. (þvílík ofurmenni) En á
Hvammstanga var hið margrómaða og frábæra Sniglaband að spila á
unglistarhátíðarballi.. Sem var mjög gaman, og ég og Aðalheiður
Lilja erum orðin heimsfræg á Hvammstanga.. en við sungum með
Sniglabandinu á ballinu sem var mjöög gaman.
svo minnir mig að ég hafi verið heima helgina eftir það... ? ef
einhver man það betur en ég þá má hann láta mig vita það..

en svo núna helgin sem var að líða.. (þótt að það sé þriðjudagur
í dag) fór ég á unglingalandsmót á Höfn í hornafirði..... og
ég lofaði sjálfum mér og öðrum því að þessa leið fer ég
AAALLLDDDRRREEEIIII aftur... ég hélt að ég ætlaði aaldrei að verða
kominn,.. þetta var hræðileg lífsreynsla... 
en já, svo er planið bara að sitja heima og tjilla þessa vikuna
þar sem það er vinnslustopp í rækjunni en vinnsla byrjar aftur
næsta mánudag... 
en er þetta nóg fyrir ykkur í bili.. ef ekki þá kommentið þið
bara.. ekki eins og ég hafi ekki tíma, eg get verið bloggari á
launum.. 
en já.. bbíb
bless bless í bili...
»
12.07.2007 20:31:01 / jon_gusti88
Nú er komið að hneykslisbloggi ársins.... en það verður um
aðstöðu og aðstoð fatlaðra í margrómaðri verslunarmiðstöð í borg
óttans, eða skort á henni öllu heldur.... 
en fyrst verð ég að segja ykkur frá því að ég var að hreyfa til
á mér hnéskelina. (óviljandi þ.e.a.s.) en ég var að þrífa niðrí
rækju og hrasaði þar um slönguna sem ég var að nota til að spúla
þar inni... en svo flækti ég fótinn í slöngunni og hrapaði niður af
einhverri rennu um einn metra eða svo og hnéskelin á mér skrapp í
smá ferðalag neðar á fætinum á mér... :/ en ég smellti henni til
baka og ætlaði bara að halda áfram að þrífa en þá kom í ljós að ég
gat ekki stigið í fótinn, hnéð gaf alltaf eftir... svo ég fékk
pétur til að koma að klára að þrífa fyrir mig..
en þá að hneykslisblogginu....
Hin áður umtalaða ónafngreinda verslunarmiðstöð hefur sett sér
salernisaðstöðu fyrir fatlaða á allar
sínar salernisaðstöður... en þá hljóta auðvitað að verða að
vera til hjólastólar fyrir allt þetta fólk sem kemst á þessa annars
fínustu salernisaðstöðu (ekkert út á hana að setja)
EN VITI MENN...!!! Í þjónustuborði verslunarmiðstöðvarinnar voru
mér gefnar þær upplýsingar að aðeins væru 2 hjólastólar þar
til útláns/leigu, en þar eru að minnsta kosti 6 salerni fyrir fólk
sem þarf að vera í hjólastól... svo var mér bent á þar sem ég stóð
(á einum fæti því ég gat ekki stigið í hinn) með
hneykslunarsvip að fara uppí hagkaup á þjónustuborðið þar því þau
ættu að eiga einn stól þar.. een allt kom fyrir ekki. honum hafði
verið stolið fyrir 2-3 vikum... og svo er að auki bara 1 lyfta (að
mér vitandi) í öllu húsinu...
ég verð bara frekar pirraður þegar ég hugsa útí þetta... nóg er
að bílastæðunum, nóg af rúllustigunum, nóg af verslunum... svo
verða menn pirraðir á því að ekki séu nógu margar konur í
stjórnunarstörfum..........
en já, nóg um það.... þá eru hamingjudagarnir. Þetta fundust mér
skemmtilegustu hamingjudagar sem hafa verið haldnir hingað til...
og þá er þetta komið gott í bili...
»
19.06.2007 23:42:19 / jon_gusti88
jæja.. þá er þriðjudagur og bíladagahelgin að baki... ég fór með
bjarka af stað eftir vinnu á föstudeginum og við tættum á akureyri
og náðum burnout keppninni. veit samt ekkert hver vann. drifum
okkur á tjaldstæðið um leið og þetta var búið... 
en já, við gistum í tjaldi við Lónshól. En fólkið þar er bara
snillingar. Vil bara þakka þeim fyrir almennilegheitin og
gestrisnina. En já, þá var komið að því að tjalda. Ég hef ekki tölu
á því hversu oft ég hef tjaldað þessu blessaða tjaldi mínu en
einhvernveginn hef ég aldrei náð að koma því upp án vandræða.. ég
er einhvernveginn ekki tjaldgaur.. en svo var skroppið niðurí bæ
og djammað eitthvað fram eftir nóttu...
(bjarki: ingvi.. láttu hana prjóna...!!!!
ingvi: hvernig geri ég það...? ) :-D :-D
svo vaknaði ég klukkan 10 og fór niðrí bæ á klósettið og að éta
og svona, en svo fór ég bara aftur að sofa. vaknaði svo um 12
leytið og vakti bjarka... skruppum með fanney og björt í bónus
og keyptum grill og kjöt og svona...
svo er komið að hraðasektinni.......
ég skrapp á sauðárkrók og til baka á laugardaginn til að sækja
Guðrúnu Sonju. svo á leiðinni til baka´, eða á leiðinni niður
öxnadalsheiðina, þá mætti ég löggu.. ég náttla þynnri en allt og á
110 km hraða... og fékk eitthvað í kringum 30 þús kall í sekt...
allt guðrúnu að kenna... :-P snáfaðu við hund... 
jáff.. svo var djammað til svona 7 um morguninn. það var geggjað
stuð...
hvernig ætli krumpugúrkan sé..? 
sorrý smá einkahúmor í gangi.. en þetta var geeðveik helgi..
nánar um það síðar..!
heyri í ykkur seinna...!
»
Síður: 1 2 3 4
|
|